Lánasjóður íslenskra námsmanna

145. fundur
Fimmtudaginn 14. maí 1992, kl. 20:50:14 (6591)


     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég var búinn að segja það sem hv. þm. sagði líka, að ástæðan fyrir því að það þurfti að breyta reglugerðinni var einmitt sú að Framsfl. kom í veg fyrir að hægt væri að breyta lögunum eins og nauðsynlegt var þá og eins og nauðsynlegt er núna. Það var ástæðan fyrir breytingu reglugerðarinnar og ástæðan fyrir því að það þurfti að skerða lánin.