Lánasjóður íslenskra námsmanna

145. fundur
Fimmtudaginn 14. maí 1992, kl. 21:23:33 (6597)


     Forseti (Björn Bjarnason) :
    Forseti hafði þegar gert grein fyrir ástæðunni og vísaði til þess samkomulags sem gert hafði verið milli forseta og formanna þingflokka og hv. ræðumaður, 2. þm. Vestf., tók tillit til þess og umræðunni hefur þegar verið frestað. Ætlunin er að taka fyrir 10. málið á dagskránni og umræðu verður fram haldið síðar í kvöld eins og fram hefur komið.