Háskólinn á Akureyri

145. fundur
Fimmtudaginn 14. maí 1992, kl. 22:31:00 (6613)


     Jóhannes Geir Sigurgeirsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil sérstaklega í tilefni af orðum hæstv. menntmrn. fagna yfirlýsingu hans um að hann sé tilbúinn að vinna því brautargengi að tryggja Háskólanum á Akureyri sjálfstæðan tekjustofn til sinnar uppbyggingar. Ég nota þetta tækifæri til að brýna hann alveg sérstaklega og menntmn. til að strax á næsta haustþingi verði sú vinna hafin.