Lánasjóður íslenskra námsmanna

146. fundur
Föstudaginn 15. maí 1992, kl. 14:44:00 (6647)

     Valgerður Sverrisdóttir :
    Hæstv. forseti. Þessi brtt. er tilkomin vegna þess að eins og frv. liggur fyrir eftir 2. umr. er gróflega vegið að hagsmunasamtökum námsmanna og er hætt við að þau lognist út af ef ekki fæst fram breyting á 16. gr. Ég segi já.