Lánasjóður íslenskra námsmanna

146. fundur
Föstudaginn 15. maí 1992, kl. 14:47:00 (6649)


     Kristín Ástgeirsdóttir :
    Virðulegi forseti. Það er mjög mikilvægt að þau samtök námsmanna sem hafa fengið félagsgjöld sín í gegnum Lánasjóð ísl. námsmanna fái þau áfram. Þessi samtök námsmanna veita félagsmönnum sínum mikilvæga þjónustu og standa vörð um hagsmuni félagsmanna sinna. Ríkisstjórnarflokkarnir eru að leggja stein í götu Samands ísl. námsmanna erlendis og Bandalags ísl. sérskólanema með frv. eins og það lítur út nú. Við viljum breyta 16. gr. frv. og fjarlægja þennan stein. Ég segi já.