Lánasjóður íslenskra námsmanna

146. fundur
Föstudaginn 15. maí 1992, kl. 14:55:06 (6652)


     Valgerður Sverrisdóttir :
    Hæstv. forseti. Eins og hér hefur komið fram gengur þessi brtt. út á að málið verði að nýju tekið fyrir í haust og að lagt verði fram þá nýtt frv. af hálfu ríkisstjórnarinnar um Lánasjóð ísl. námsmanna. Verði það ekki gert er ljóst að stjórnarandstaðan mun á einhvern hátt taka málið upp að nýju í haust. Ég segi já.