Afkoma landbúnaðarins

146. fundur
Föstudaginn 15. maí 1992, kl. 15:40:22 (6673)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Eins og áður hafði verið tilkynnt hefst nú utandagskrárumræða skv. fyrri mgr. 50. gr. þingskapalaga. Hún fer fram að beiðni hv. 3. þm. Austurl. um afkomu landbúnaðarins og áhrif búvörusamnings á sauðfjárbændur. ( Gripið fram í: Fáum við ekki hlé?) Forseti er nú að reyna að gera þingmönnum grein fyrir því að fundinum er ekki lokið heldur er hér að hefjast utandagskrárumræða sem stendur í hálftíma.