Skýrsla forsætisráðherra um Byggðastofnun

147. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 00:09:22 (6735)


     Forseti (Björn Bjarnason) :
    Forseti mælist eindregið til þess við þingmenn og fulltrúa þingflokka að þeir tefji ekki umræður um Byggðastofnun og noti tímann á meðan þær ræður verða fluttar sem hér á eftir að flytja um það mál og velti fyrir sér með forseta, sem er í húsinu, að fulltrúar þingflokkanna ræði málin og reyni að komast að niðurstöðu þannig að við tefjum ekki umræður hér.