Skýrsla forsætisráðherra um Byggðastofnun

147. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 00:11:30 (6737)


     Forseti (Björn Bjarnason) :
    Forseti mælist til þess við hv. fulltrúa þingflokkanna að þeir ræði við forseta Alþingis, sem er hér í húsinu, um þetta mál á meðan umræðurnar um Byggðastofun fara fram þannig að þeim umræðum verði örugglega lokið. Það er mikið kappsmál og hefur verið kappsmál alls þingsins um margra mánaða skeið að þessari umræðu verði lokið og mér finnst furðulegt ef það á nú að fara að tefja fyrir henni á meðan menn geta ræðst við og það er samkomulag um að halda henni áfram. Ég bið menn um að ræða við forseta Alþingis, sem er hér, um þetta mál á meðan.