Skýrsla forsætisráðherra um Byggðastofnun

147. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 00:59:18 (6742)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Herra forseti. Varðandi það sem hv. þm. nefndi sérstaklega um flutning stofnana út á land, þá vildi ég mega leyfa mér að vitna til svars sem ég gaf nýlega við fyrirspurn frá hv. 5. þm. Austurl. og er í þingtíðindum, það eru kannski 3--4 vikur síðan, eftir minni sagt, ef hv. þm. tæki því vel svo síðla kvölds.