Umræða um skýrslu umhverfisnefndar um álver á Keilisnesi o.fl.

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 11:12:29 (6752)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Hv. þm. hefur áður minnst á þetta mál og forseti svarað því og staðfest að þessi ósk hefur komið fram og verður skoðað með hliðsjón af þeim þrönga tíma sem eftir er til þriðjudags en við miðum við það samkomulag sem gert hefur verið að ljúka hér þingi á þriðjudag.