Skipaútgerð ríkisins

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 12:58:06 (6784)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Herra forseti. Ég vil ítreka það sem ég sagði hér áðan. Ég hef haft persónulegt samband við forstjóra Samskipa og honum kom mjög á óvart að hér skyldu vera uppi raddir um það að hann hefði í hyggju að fella niður reglulegar ferðir til Norðurfjarðar. Það hefur alls ekki komið til tals innan hans fyrirtækis og engar slíkar hugmyndir eru uppi. Ég vil að það sé alveg skýrt.