Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Ég vil láta það koma fram vegna Færeyjaflutninganna að flutningarnir sem voru, þegar mest var, um 1.400 tonn en féllu auðvitað í ágúst og september, eins og hefur raunar komið fram opinberlega, en fóru þó ekki nema í tæplega 1.000 tonn. Eftir sem áður var hagnaður af þeim. Það er ekki fyrr en í nóvember að flutningamagnið fer niður í 350 tonn á mánuði bæði vegna Ewos-málsins en líka, og við megum ekki gleyma því og ráðherra má ekki gera lítið úr því að þegar búið er að gefa út yfirlýsingu að fyrirtæki verði lagt niður þá missa menn auðvitað samninga og ná síður samningum um flutning. Bara yfirlýsingin ein er því tap fyrir fyrirtækið.
Auðvitað eru þetta peningar sem menn leggja fram til samfélagslegrar þjónustu, segi ég vegna þeirra orða hæstv. ráðherra að menn hafi látið mikið fé í Skipaútgerð ríkisins og ber það saman við nýbyggingafé til vegagerðar í kjördæmum. En ég vil minna hæstv. ráðherra á að sjóflutningar eru ódýrasti flutningamáti sem völ er á af þeirri einföldu ástæðu að menn þurfa ekki að byggja vegi. Það er hagkvæmasti kosturinn í flutningum nú til dags og hagkvæmni sjóflutninga hefur í tækniframförum síðustu 20 ára aukist stórlega og miklu meira en sú hagkvæmni sem fylgt hefur bættum vegum. Þetta er auðvitað allt byggt á tölum sem til eru og hæstv. ráðherra getur kynnt sér. Ég tek því ekki undir þennan málflutning. Ég lít hins vegar á það sem skyldu samfélagsins að annast samgöngukerfið hvort sem það er á landi eða sjó. Ég sé ekki eftir því fé sem menn hafa látið í þá hluti því að það fé hefur sparað líka, virðulegur forseti.