Skattskylda innlánsstofnana

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 14:49:04 (6801)

     Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar) :
    Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þessar upplýsingar en það breytir auðvitað ekki því að það verður um vaxtahækkun að ræða, bæði hjá þessum sjóði og öðrum og þeim vöxtum verður velt yfir þá sem taka lánin. Einhvern veginn verða menn að ná inn fyrir þessum sköttum og skyldum þannig að það breytir ekki því að það verður um vaxtahækkun að ræða og ég spyr enn: Hvernig kemur það heim og saman við vaxtastefnu ríkisstjórnarinnar og kjarasamningana?