Áhrif samnings um Evrópska efnahagssvæðið á innflutning búvara

148. fundur
Laugardaginn 16. maí 1992, kl. 17:19:00 (6836)

     Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal) :
    Herra forseti. Ég vil ítreka það sem ég sagði áðan. Ákvörðun var tekin um það í febrúarmánuði á árinu 1991 að draga Íslendinga út úr þeirri nefnd sem fjallaði um landbúnaðarmálin. Þannig stóðu sakir þegar stjórnarskipin urðu. Ef fyrrv. ráðherrar skilja þetta svo að með því að rifja þetta upp sé verið að ráðast á þeirra eigin stjórnarathafnir, þá verður þeirra mat að standa. Mín vegna má gera það.