Málefni fatlaðra

149. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 13:23:53 (6861)


     Kristinn H. Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Ég er reyndar líka með sömu tillögu á öðrum forsendum sem að sjálfsögðu kemur ekki til atkvæðagreiðslu. En ég vil skýra afstöðu mína til brtt. í ljósi þess sem komið er. Með þeim breytingum sem samþykktar hafa verið er eini samráðsvettvangurinn milli ráðuneytanna í 8. gr. Ég tel því nauðsynlegt að hafa þennan vettvang til þess að menn geti einhvers staðar haft formlegan stað til að samræma sjónarmið og aðgerðir. Ég er því nú í ljósi samþykktra breytinga á frv. andvígur því að 8. gr. verði felld út.