Málefni fatlaðra

149. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 13:52:12 (6872)


     Kristinn H. Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Í framhaldi af atkvæðaskýringu hér rétt áðan sem fjallaði um atkvæðaskýringu mína þar á undan vil ég láta það koma fram að sú ákvörðun að fella brott töluliðinn um göngudeild fullorðinna sparar fé eins og fram kemur í nál. en það fé kemur ekki öðrum til góða. Þetta hlutverk sem þarna var inni er ekki fært út í héruðin. Þess vegna var ég á móti þessu, virðulegur forseti.