Málefni fatlaðra

149. fundur
Mánudaginn 18. maí 1992, kl. 14:40:11 (6882)


     Svavar Gestsson :
    Virðulegi forseti. Ég styð þessa tillögu vegna þess að hún er sjálfsögð. Það er búið að eyða öllum peningum úr Framkvæmdasjóði fatlaðra hvort eð er á árinu 1992 og það væri verið að gefa fötluðum ranga mynd af veruleikanum ef þessi tillaga yrði felld. Þess

vegna segi ég já við tillögunni.