Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Matthías Bjarnason)
:
Herra forseti. Hér er flutt frv. til laga um breyting á lögum nr. 49/1974, um Lífeyrissjóð sjómanna, sbr. lög nr. 10/1978, nr. 15/1980, nr. 48/1981 og nr. 78/1985.
Þetta frv. er flutt að beiðni stjórnar Lífeyrissjóðs sjómanna.
Nefndin fjallaði um frv. og fékk á sinn fund Gunnar Hafsteinsson, formann stjórnar Lífeyrissjóðs sjómanna, og Árna Guðmundsson, forstöðumann sjóðsins.
Samstaða er innan stjórnar sjóðsins um þær lagabreytingar sem frumvarpið mælir fyrir um. Er reglum breytt til samræmis við þær reglur sem gilda í lífeyrissjóðum innan Sambands almennra lífeyrissjóða en Lífeyrissjóður sjómanna er samstarfssjóður sambandsins.
Nefndin leggur til að gerðar verði tvær breytingar á frumvarpinu. Meginbreytingin felst í því að við bætist bráðabirgðaákvæði um fimm ára aðlögunartíma þeirra örorkulífeyrisþega og barnalífeyrisþega sem 5. og 8. gr. frumvarpsins kunna að hafa áhrif á. Vegna þessarar breytingar þarf síðari málsliður 10. gr. að falla brott en í honum var gert ráð fyrir að umrædd ákvæði kæmu til framkvæmda 1. janúar 1993.
Brtt. þessar eru prentaðar á þskj. 998 og er nánar tiltekið að síðari málsliður 10. gr. falli brott. og að við bætist ákvæði til bráðabirgða er orðist þannig:
,,Örorkumat örorkulífeyrisþega, sem nýtur bóta vegna orkutaps fyrir gildistöku laga þessara, skal fyrstu fimm árin eftir gildistöku laganna miða við vanhæfni sjóðfélaga til þess að gegna starfi því er hann hefur gegnt og aðild hans að sjóðnum er tengd en eftir það skal miða við vanhæfni til almennra starfa. Þá skal breyting á barnalífeyri örorkulífeyrisþega vegna áhrifa ákvæðis 8. gr. laga þessara ekki koma til framkvæmda fyrr en fimm árum eftir gildistöku þeirra.``
Meiri hluti nefndarinnar var meðmæltur því að frv. yrði samþykkt með þessum tveimur breytingum sem ég hef gert hér grein fyrir og undir nál. rita Matthías Bjarnason, Rannveig Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Egilsson og Árni M. Mathiesen og með fyrirvara rita Halldór Ásgrímsson og Jóhannes Geir Sigurgeirsson.
Ingi Björn Albertsson var fjarstaddur afgreiðslu málsins, en tveir nefndarmenn skila sérstöku áliti á þskj. 997.