EES-samningurinn og fylgiefni hans

151. fundur
Þriðjudaginn 19. maí 1992, kl. 11:31:00 (7037)


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Ég vil biðja hv. þm. að gæta orða sinna.
    Nú hefur í nærri klukkutíma farið fram umræða um gæslu þingskapa og forseti vill beina því til hv. þingmanna, sem eiga eftir að taka til máls um gæslu þingskapa, að reyna að halda sig við gæslu þingskapa en fara ekki í efnislegar umræður um það mál sem hér hefur aðallega verið fjallað um.