Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
:
Virðulegur forseti. Ég sé hér á dagskrá fundarins í dag að 33. mál á þeim fundi er Framkvæmdaáætlun til að ná fram jafnrétti kynjanna. Ég hef ítrekað tekið þetta mál upp í þingsköpum til þess að grennslast fyrir um það hvort þess sé einhver kostur að fá það rætt áður en Alþingi fer heim. Ég hef bent á að það er lagaskylda að gera slíka áætlun. Það hefði því verið sómi að því fyrir Alþingi að ganga frá þessu máli fyrir þingslit. Það er auðvitað útilokað mál úr því sem komið er. Þarna er um að ræða fyrri umræðu um málið og vegna þess hvernig málið er í pottinn búið og frá gengið í ráðuneytunum hefði þurft um það talsverða umræðu í félmn. þingsins og sú umræða næst ekki á þessum tíma. Það er borin von að hægt sé að afgreiða þessa áætlun. Ég hafði hins vegar gert mér ákveðnar vonir um að það fengist hér umræða um áætlunina, fyrri umræða, vegna þess að ég held að bæði þingmenn almennt, og ég tala nú ekki um ráðherrar, hefðu haft afskaplega gott af þeirri umræðu. Ég sé að þetta er ekki eitt af því sem menn raða hér í forgang og enginn mér vitanlega úr hópi þingmanna hefur lagt á það kapp að málið verði rætt eða komist hér yfirleitt á dagskrá. Ég held við verðum að lúta í lægra haldi með þetta mál, það verði ekki rætt hérna og þykir mér það auðvitað mjög miður því ég hef ýmislegt að segja við ráðherrana um jafnréttisáætlanir þeirra en það verð ég þá bara að gera í haust.
Vegna þess hversu þessar áætlanir eru gallaðar að mínu mati ætla ég að fara fram á það við hæstv. félmrh., sem leggur þessa áætlun fram og væntanlega fyrir hönd ráðherranna allra, að áætlunin fari til umsagnar í sumar hjá ýmsum samtökum sem láta sig þessi mál varða þannig að þau geti þá komið á framfæri við ráðherra og ríkisstjórn ábendingum um það hvernig betur mætti að þessum málum standa en áætlunin gerir ráð fyrir. Ég vil nefna í því sambandi jafnréttisnefndir sveitarfélaganna, Kvenréttindafélagið, Rannsóknarstofu í kvennafræðum hjá Háskóla Íslands, BSRB, BHMR, ASÍ, VSÍ, Kennarafélag Íslands, Samband ísl. bankamanna, Fóstrufélag Íslands, Kvennaathvarfið, Stígamót og e.t.v. einhverja fleiri ef mér detta þeir í hug og þá mundi ég koma því á framfæri við félmrh. Ég mundi gjarnan vilja fá að heyra hvaða undirtektir þessi málsmeðferð hlýtur.