Afbrigði um dagskrármál

152. fundur
Þriðjudaginn 19. maí 1992, kl. 18:12:50 (7100)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Þá þarf að leita afbrigða skv. 90. gr. þingskapa vegna þess af of skammt er liðið frá 2. umr. um nokkur dagskrármál. Þau eru: Fiskistofa, 432. mál, Gjald vegna ólögmæts sjávarafla, 430. mál, Lífeyrissjóður sjómanna, 489. mál, Skattskylda innlánsstofnana og Skiptaverðmæti og greiðslumiðlun, 426. mál. Sömuleiðis er of skammt er liðið frá því að frv. um ábyrgðasjóð launa vegna gjaldþrota var lagt fram og frá útbýtingu brtt. á þskj. 1040 og nál. á þskj. 1039. Verður nú þessara afbrigða leitað.