Ábyrgðasjóður launa vegna gjaldþrota

152. fundur
Þriðjudaginn 19. maí 1992, kl. 19:29:06 (7121)

     Ingibjörg Pálmadóttir :
    Virðulegi forseti. Vegna þeirra umræðna sem verið hafa um þetta mál finnst mér að við höfum ekki fengið svör við því hvers vegna hæstv. ríkisstjórn flytur ekki málið. Hvers vegna félmn. Alþingis? Mér finnst það mjög einkennilegur aðdragandi. Ég fékk þetta frv. í hendurnar klukkan tvö í nótt, það var fundur klukkan hálfníu í morgun. Mér finnst ég hafa ekki fengið svör við því hvers vegna hæstv. ríkisstjórn flytur ekki þetta mál.