Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Sá skilningur hafði skapast í kvöld þegar gert var hlé á umræðum að þegar atkvæðagreiðslu væri lokið yrði tekinn fyrir samningur EFTA og Íslands við Tyrkland sem er dagskrárliður á undan þeim sem nú á að taka fyrir. Það gerist hins vegar okkur nokkuð á óvörum að hæstv. forseti hleypur yfir þennan lið og ákveður að taka fyrir vegáætlun. Hver er skýringin? Er skýringin kannski sú hin sama og í umræðunni um lánasjóðinn um daginn að þegar stjórnarmeirihlutinn á Alþingi áttaði sig á að það var beint útvarp og beint sjónvarp frá Alþingi þannig að þjóðin gat hlustað milliliðalaust á málflutning héðan frá Alþingi ákvað stjórnarmeirihlutinn að rjúfa umræðuna og taka hið viðkvæma mál ekki fyrir fyrr en flestir væru farnir að sofa? Á að gera það sama nú? Á að haga því þannig að hæstv. utanrrh. þurfi ekki að standa í vörn sinni fyrir þessu máli fyrr en þjóðin er farin að sofa? Taka fyrst vegáætlun fyrir og bíða svo þangað til í nótt þegar flestir eru farnir að sofa og taka þá til við að ræða þetta viðkvæma mál fyrir ríkisstjórnina? Ég gagnrýni þau vinnubrögð. Ég reiknaði með því eins og flestir þingmenn að þegar atkvæðagreiðslum væri lokið hæfist umræðan um þetta mál. ( Forseti: Forseta er ljúft að verða við því. Forseti stóð í þeirri meiningu að það hefði verið samkomulag um að víxla þessum málum eins og forseti gerði en þar sem hefur komið í ljós að svo er ekki er forseta ljúft að taka fyrir 7. dagskrármálið, Fríverslunarsamning EFTA við Tyrkland.) Ég þakka hæstv. forseta fyrir að hafa tekið tillit til þessara óska og hefði nú oft farið betur fyrr í vetur ef slík samvinnulipurð og jákvæður hugsunarháttur hefði ríkt á forsetastóli.