Vegáætlun 1991--1994

153. fundur
Miðvikudaginn 20. maí 1992, kl. 00:44:53 (7160)


     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Ég taldi og tel að vísunin til fjárveitinganefndar hafi fyrst og fremst verið þess eðlis að hún skyldi af þingsins hálfu aðgæta að fjmrh. þáv. gerði samninginn innan þeirra heimilda sem þingið veitti. Ég tel að þáv. fjmrh. hafi gert samninginn vel innan þeirra heimilda sem þingið veitti og þess vegna hefði verið auðvelt fyrir hæstv. fjárveitinganefnd að staðfesta með sínu eftirlitshlutverki að þáv. hæstv. fjmrh. hafi í einu og öllu farið eftir þeim heimildum sem þingið hafði veitt honum.