Fullorðinsfræðsla

154. fundur
Miðvikudaginn 20. maí 1992, kl. 03:22:56 (7194)


     Valgerður Sverrisdóttir :
    Hæstv. forseti. Þó ég sé ekki fyllilega sátt við þá niðurstöðu sem varð í hv. menntmn. um afgreiðslu þessa máls, sérstaklega hvernig fullorðinsfræðsluráðið er skipað, þá tel ég það svo mikils virði að þetta mál nái fram að ganga að ég mun greiða því atkvæði.