Afbrigði um dagskrármál

155. fundur
Miðvikudaginn 20. maí 1992, kl. 03:41:01 (7196)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Leita þarf afbrigða fyrir þeim málum sem eru á dagskrá, þ.e. 1. dagskrármálið, Frestun á fundum Alþingis, 549. mál, þar sem of skammt er liðið frá útbýtingu tillögunnar. Auk þess þarf að leita afbrigða þar sem of skammt er liðið frá 2. umr. um 2. og 3. dagskrármálið, Vernd barna og ungmenna, 422. mál, og Fullorðinsfræðslu, 421. mál. Fer nú fram atkvæðagreiðsla um þessi afbrigði.