Þingfrestun

155. fundur
Miðvikudaginn 20. maí 1992, kl. 04:04:41 (7201)


     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
    Handhafar valds forseta Íslands hafa ritað svofellt bréf:
    ,,Handhafar valds forseta Íslands samkvæmt 8. gr. stjórnarskrárinnar, forsætisráðherra, forseti Alþingis og forseti Hæstaréttar, gera kunnugt:
    Að vér, að tilskildu samþykki Alþingis, veitum forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis 115. löggjafarþings frá 20. maí 1992 og standi sú frestun til 17. ágúst 1992 nema kveðja þurfi Alþingi saman samkvæmt síðari mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar.

Gjört í Reykjavík, 19. maí 1992.


Davíð Oddsson, Salome Þorkelsdóttir,

Guðrún Erlendsdóttir.


_____________
Davíð Oddsson.

Bréf handhafa valds forseta Íslands um frestun á fundum Alþingis.``

    Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum þessa Alþingis, 115. löggjafarþings, er frestað.
    Ég leyfi mér að óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, allra heilla.