Sementsverksmiðja ríkisins

6. fundur
Mánudaginn 14. október 1991, kl. 14:09:00 (157)

     Kristín Ástgeirsdóttir (um þingsköp) :
     Virðulegi forseti. Ég vil taka undir orð síðasta ræðumanns um það að þessari umræðu verði frestað. Eins og fram kom í máli hv. 15. þm. Reykv. hér áðan er margt flókið í þessu máli sem þarf að ræða nánar. Ég tek undir þá ósk að þessari umræðu verði frestað þangað til iðnrh. verður viðstaddur.