Umferð kjarnorkuknúinna herskipa um íslenska lögsögu

9. fundur
Fimmtudaginn 17. október 1991, kl. 10:47:00 (242)

     Eyjólfur Konráð Jónsson :
     Hæstv. forseti. Ég vil aðeins lýsa því yfir að ég er mjög ánægður með það að í utanrmn. verði tekin upp umræða um þessi mál eins og gert var 1985 og að hér skuli vera vakin athygli á þeirri merku ályktun sem þá var gerð. Ég þarf ekki að hafa fleiri orð um það. Þetta er auðvitað stærst allra mála og við munum í utanrmn. áreiðanlega reyna að ná samkomulagi svipað og gerðist með þeirri merku ályktun sem hér var vitnað til.