Gæðamál og sala fersks fisks

11. fundur
Mánudaginn 21. október 1991, kl. 14:09:00 (315)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
     Herra forseti. Hér hefur farið fram mjög góð umræða um sjávarútvegsmál og hefur verið rekinn mjög harður áróður fyrir því að þorskarnir verði skyldaðir að fara í A-flokk, þar verði enginn griður gefinn og miðað við fylgishrun Alþfl. samkvæmt skoðanakönnunum er að sjálfsögðu ekkert skrýtið þó að heilbrrh. styðji þá hugmynd að að minnsta kosti þorskarnir fari í A-flokk.