Kostnaður af samningum um Evrópska efnahagssvæðið

12. fundur
Þriðjudaginn 22. október 1991, kl. 13:48:00 (346)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
     Virðulegi forseti. Ég taldi að þennan tíma ætti að nota til þess að spyrja um viðhorf og efnisatriði sem ráðherrar gætu svarað úr. Það gefur auga leið að spurningu eins og þessari er ekki hægt að svara á augabragði. Svarið er því: Ég veit það ekki.