Skýrsla utanrrh. um niðurstöður samninga um Evrópskt efnahagssvæði

13. fundur
Miðvikudaginn 23. október 1991, kl. 18:34:00 (400)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Eins og samið var um var stefnt að því að ljúka þessari umræðu fyrir kvöldmat og það þýðir að við höfum núna einn klukkutíma til þess að ljúka umræðunni um hálfáttaleytið eða fyrir átta, getum við sagt. Og það þýðir að ekki verða nema u.þ.b. 15 mínútur fyrir hvern þingflokk ef allir vilja fá orðið.