Eyjólfur Konráð Jónsson
:
Hæstv. forseti. Mér finnst nú að ekki hafi verið nauðsyn að halda neinn fund á þessum degi ef ekki á að ræða um Evrópska efnahagssvæðið. Hins vegar er það alveg ljóst að það skiptir sáralitlu máli hvort það er rætt nú eða eftir viku, tíu daga eða tvær vikur. Staðreyndin er sú að það hefur enginn samningur verið gerður. Það er margupplýst enda enginn maður með umboð til að gera neinn samning. Utanrrh. sjálfur hefur upplýst það, eins og menn vita, að ekki sé búið að samræma neinn texta, það hefur ekki verið skrifað undir neinn texta, enginn hefur sett stafi sína á eitt eða neitt, enda hefði það verið lögleysa.
Ég hef margsinnis vakið á því athygli hér í þinginu og annars staðar að það sé enginn samningur gerður fyrr en ríkisstjórnin í fyrsta lagi sé búin að fjalla um hann og samningamenn að setja stafi sína undir eitthvað ef þeir ekki skrifa nafnið sitt allt saman. Það hefur ekki verið gert og engir stafir verið skrifaðir, enginn texti er til staðfestur eða samanborinn. Það eru til einhver slitur af samningi sem taka þó alls ekki yfir það sem mestu máli skiptir, ekki hvað mikinn fisk hver fær núna, heldur hitt hvernig skuli fara með þetta lögfræðilega. Það er mjög vandasamt. ( Forseti: Forseti verður að biðja hv. þm. um að tala einungis um þingsköp.) Já, já, þetta eru þingsköp og ég skal endurtaka að það eru einmitt þingsköp sem ég er að ræða, hvort það hafi verið nauðsyn að hæstv. utanrrh. væri hér og lyki umræðunni. Ég tel að það sé engu hætt þó að það bíði. Það er nógur tími til þess. Það verður ekkert skrifað undir eða samþykkt og það er langt þar til að Alþingi tekur þetta mál til umfjöllunar. Utanrmn. hefur á tveimur sólarhringum eða svo haldið fimm fundi um þetta mál. Hún er reiðubúin að halda fundum áfram ef menn vilja. Það er allt óklárt af hálfu ríkisstjórnarinnar sem eðlilegt er. Þetta eru svo flókin mál að það er gjörsamlega lífsins ómögulegt fyrir nokkurn mann að vera svo gáfaður að geta afgreitt þetta á tveimur til þremur dögum, tveimur til þremur vikum eða tveimur til þremur mánuðum. Málið er miklu flóknara en svo og alvarlegra og mikilvægara fyrir þjóðina alla um ókomna framtíð eins og menn hafa margsinnis vakið athygli á. Þess vegna eru það þingsköp að reyna ekki hér í þinginu að knýja það fram óskoðað að eitthvað verði bindandi fyrir Íslendinga. Við erum óbundnir af öllu sem gert hefur verið í þessu EES-máli og við þingmenn hljótum að krefjast þess að við fáum eðlilega umfjöllun um málið í nefnd og hér í þinginu áður en til atkvæða verður gengið.