Tilkynning um dagskrá

16. fundur
Föstudaginn 25. október 1991, kl. 11:16:02 (529)

          Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Rétt er að geta þess að samkomulag hefur orðið milli forseta og þingflokksformanna um að umræðan um skýrslu utanrrh. hefjist þegar hæstv. utanrrh. kemur til fundarins, sem mun verða um kl. 2. Verður þá settur nýr fundur þar sem það mál kemur á dagskrá og verður þá framhald umræðu um skýrsluna tekið fyrir.