Skýrsla forsætisráðherra um Byggðastofnun

18. fundur
Þriðjudaginn 05. nóvember 1991, kl. 00:20:00 (614)

     Jón Kristjánsson (um þingsköp) :
     Herra forseti. Ég vil þakka fyrir þá ákvörðun að fresta þessari umræðu. Ég vil aðeins benda á það að það er að sjálfsögðu forsetanna að ákveða hvenær að deginum þessi umræða heldur fram og ég treysti þeim til að gera það og sjá til þess að umræðunni verði fram haldið að degi til en ekki að næturlagi og ég fer fram á það að henni verði fram haldið sem fyrst. Að öðru leyti vil ég þakka fyrir þá ákvörðun að láta okkur ekki standa hér fram á nótt yfir hálftómum sölum við þessa umræðu.