Lánasjóður íslenskra námsmanna

19. fundur
Þriðjudaginn 05. nóvember 1991, kl. 16:02:00 (639)

     Forseti (Björn Bjarnason) :
     Hv. 11. þm. Reykv. veitir andsvar við ræðu hv. 2. þm. Vestf. Ég minni þingmenn á að það er bannað að veita andsvar við andsvari. Menn geta aðeins veitt andsvar við ræðu þingmanns og í þessu tilviki er verið að ræða um ræðu hv. 2. þm. Vestf. þannig að hann verður að snúa máli sínu að þeirri ræðu.