Skýrsla utanrrh. um niðurstöður samninga um Evrópskt efnahagssvæði

19. fundur
Þriðjudaginn 05. nóvember 1991, kl. 22:22:00 (664)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
     Ég þakka hv. 4. þm. Reykv. og formanni utanrmn. fyrir að hafa staðfest þann skilning sem ég hafði á málinu. Mér sýnist að það sé mjög mikilvægt innlegg í málið á þessum kvöld- og næturfundi sem nú bersýnilega blasir við að sögðum þessum miklu tíðindum.