Skýrsla utanrrh. um niðurstöður samninga um Evrópskt efnahagssvæði

19. fundur
Þriðjudaginn 05. nóvember 1991, kl. 23:25:00 (674)

     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson) (andsvar) :
     Virðulegi forseti. Því miður get ég ekki svarað fyrirspurn hv. 9. þm. Reykv. með endanlegum hætti hér og nú. Áður en það verður gert svo óyggjandi sé þarf að eiga sér stað nánara samráð milli þeirra ráðuneyta sem málið varðar, þ.e. hver er fjöldi þeirra frumvarpa og hversu mörg frumvörp koma í hlut hvers ráðuneytis sem fylgifrumvörp með málinu. En að öðru leyti skildi hv. þm. rétt áform ríkisstjórnarinnar um afgreiðslu málsins.