Landbúnaðarráðherra (Halldór Blöndal)
:
Hæstv. forseti. Ég vil taka það fram fyrst að það er rétt sem hv. 1. þm. Austurl. segir að ég hef ekki svarað hans bréfi skriflega. Ástæðan er sú að alveg fram á síðustu stund hef ég verið að velta þessu máli fyrir mér og síðast í gær fékk ég á minn fund fulltrúa frá öryggisnefnd Félags ísl. atvinnuflugmanna sem var mjög afgerandi um nauðsyn þess að sú regla yrði tekin upp af öryggisástæðum að tveir flugmenn væru í áætlunarflugi. Ég hreyfði sömu andmælum og hv. þm. sem mótrök gegn því sem þeir sögðu en það var alveg afdráttarlaust þeirra mat á því að þetta væri óhjákvæmilegt og þeir nefndu nokkur dæmi um það að slys hefði orðið sökum þess að einungis var einn flugmaður við stjórn.
Ég vil líka taka það fram að ég hygg að allir flugmenn eða a.m.k. allur þorri flugmanna Flugfélags Norðurlands hefur sent mér áskorun þess efnis að þessari reglugerð verði ekki breytt og það er þess vegna alveg greinilegt að meðal atvinnuflugmanna er sá skilningur uppi að nauðsynlegt sé að taka af skarið. Ég varpaði fram þeim möguleika hvort hugsanlegt væri að hafa ákvæði reglugerðar rýmri en einstök flugfélög mundu móta sér starfsreglur sem í raun og veru fælu í sér það öryggi sem við kepptum eftir og ekki væri teflt í tvísýnu í áætlunarflugi. Það er skemmst frá því að segja að það töldu atvinnuflugmenn ekki viðunandi lausn.
Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð. Sú leið sem ég hef hér lýst er í samræmi við skoðun Loftferðaeftirlitsins og ekki hafa verið gerðar athugasemdir við hana, m.a. af öryggisnefnd Félags ísl. atvinnuflugmanna.
Ég tek undir þær áhyggjur sem menn hafa af því að þetta geti orðið minni flugfélögum fjárhagslega erfitt en á hinn bóginn blasti það við þegar reglugerðin var sett og hefur ekkert breyst í þeim efnum nú á þessum síðustu mánuðum. Ég vil líka taka fram að varðandi Grímsey hefur verið gerð undantekning á fjárlögum um nokkurn rekstrarstyrk til að halda uppi sómasamlegum samgöngum þangað og hið sama á að sjálfsögðu við um Árneshrepp sem að þessu leyti er svipað ástatt um.