Ingi Björn Albertsson
:
Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð út af frv. Það hefur komið fram í umræðunni að ég hef margoft tjáð mig um þessa skattlagningu og ég tel alveg óþarfa að fara yfir allan þann rökstuðning einu sinni enn. Ég gat hins vegar ekki annað en brosað innra með mér er ég hlustaði á hv. þm. Svavar Gestsson og reyndar aðra tala um ábyrgðarleysi Sjálfstfl. og hvernig hann skipti um skoðun eftir því hvort hann væri í stjórn eða stjórnarandstöðu. Ég ætla að leyfa mér að minna hv. þm. Svavar Gestsson á það að við börðumst hér hlið við hlið, hatrammlega, fyrir örfáum árum síðan, fyrir aflagningu mjög óréttlátrar skattlagningar sem þá var kölluð matarskattur. Ég man eftir formanni Alþb. þegar hann boðaði til fundar inni í versluninni Miklagarði, dró þar fram kassa og stóð uppi á og barðist þar gegn þessari skattlagningu og gekk enn lengra. Hann brennimerkti formann Alþfl. sem seinna meir varð samstarfsráðherra hans, brennimerkti hann fyrir lífstíð, þangað til hann mundi afnema þennan skatt.
Hvað skeði svo? Formaður Alþb. varð síðar meir fjmrh. og voru þeir alþýðubandalagsmenn sjálfum sér samkvæmir þá? Réðust þeir ekki beint á matarskattinn og lögðu hann af? Ég held að allir viti svarið við því. Það gerðist ekki og ferst þeim því að tala um aðra flokka í slíku samhengi. ( Gripið fram í: Ert þú ekki í stjórn núna?) Ég sagði í upphafi að ég ætlaði ekki að hafa langar ræður hér og get sagt þeim sem til mín hafa beint spurningum að ég er ekkert að hlaupa út undan mér. Eina erindi mitt hér upp í ræðustól er að lýsa því yfir að ég hef ekki skipt um skoðun. Það þarf ekkert að spyrja hæstv. fjmrh. hvernig sú umræða fór fram inni í þingflokknum. Ég lýsti þar yfir andstöðu við þennan skatt og ég mun greiða atkvæði gegn honum. (Gripið fram í.) Það er lýst eftir tillögum á móti. Hæstv. fjmrh. lýsir eftir þeim, vilji menn leggja þennan skatt af beri að koma með

tekjur á móti. Það er auðvitað mjög auðvelt að gera slíkt í hinum ýmsu málaflokkum sem menn eru ósáttir við. Ég skal hins vegar slá fram einni hugmynd. Ég man ekki betur en fram hafi komið að ferða-, risnu- og dagpeningakostnaður íslenska ríkisins sé yfir 1 milljarður kr. Hér er verið að tala um 0,5 milljarða kr. Er ekki í lagi að ráðast aðeins á þann lið og skera hann niður til móts við þetta?