Samgöngumál á Austurlandi

22. fundur
Fimmtudaginn 07. nóvember 1991, kl. 16:55:00 (795)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
     Nú eru 30 mínúturnar liðnar og þess vegna er þessum umræðum lokið. Það skal tekið fram að af sérstökum ástæðum verður að fresta . . . ( HÁ: Er ekki hægt að bera af sér sakir?) Telur þingmaðurinn sig þurfa að bera af sér sakir? ( HÁ: Já.) Ekki getur forseti neitað honum um það og verður honum leyft að bera af sér sakir.