Verðjöfnunarsjóður sjávarútvegsins

23. fundur
Mánudaginn 11. nóvember 1991, kl. 15:21:00 (850)

     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) (um þingsköp) :
     Ég óskaði eftir því að gefa andsvar fyrr í umræðunni og taldi mig hafa fengið leyfi til þess. Eftir það talaði hv. málshefjandi og að loknu hans máli veitir forseti öðrum þingmanni rétt til þess að gefa andsvar við ræðu sem ég hafði flutt fyrr á fundinum. Ég held að það fari ekki á milli mála að hér er gengið þvert á reglur þingskapa um andsvör.