Frestur á framkvæmdum við álver á Keilisnesi

24. fundur
Þriðjudaginn 12. nóvember 1991, kl. 18:03:00 (888)

     Anna Ólafsdóttir Björnsson :
     Virðulegi forseti. Vegna ræðu hv. 5. þm. Reykn. sé ég mig tilknúna að bera af mér sakir. Það er mikill misskilningur að ég hafi fagnað því að staða atvinnumála sé slæm nú. Hins vegar hlýt ég eins og aðrir að fagna því ef atvinnustefna ríkisstjórnarinnar leiðir okkur ekki á þá háskalegu braut sem bygging álvers hefði orðið. Þetta mundi hv. 5. þm. Reykn. vita ef hann hefði hlustað almennilega á mál mitt.