Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Í fyrsta lagi erum við ekki bundnir. Það kom mjög skýrt fram í því sem ég sagði. Við erum ekki lögformlega bundnir, enda hefur samningunum ekki verið lokið. Það er algjörlega á hreinu. Hins vegar, eins og kom fram í máli mínu, erum við að sjálfsögðu siðferðilega skuldbundnir þessum mönnum sem við höfum starfað með og ætlum að ljúka tæknilega samningagerðinni.
Í öðru lagi spurningin um umhverfisendurskoðunarákvæðin. Þar vil ég svara því að það er ekki unnt að svara spurningu hv. 7. þm. Reykn. í smáatriðum án þess að fara með alla endurskoðunargreinina sem ég hef ekki við höndina nú en sem grein verður gerð fyrir hér í þinginu í sérstakri skýrslu umhvrh. sem fram verður lögð í vikunni eins og kom fram í máli mínu áðan. Ég endurtek það sem ég sagði að þar er fullnægjandi lausn á málinu. Það er ekki svo að í stað þessara samtengdu hliðstæðuákvæða sem hv. 7. þm. Reykv. vitnar til hafi komið einhver lítil breyting, heldur hefur orðið þarna alger endurritun á endurskoðunarákvæðunum og ég vísa til þess sem fram mun koma í skýrslu umhvrh.