Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson)
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Ég kem hér til að taka undir þau orð sem hv. 9. þm. Reykv. hafði um þingsköpin. Ég held að það sé nauðsynlegt að huga að þessum ákvæðum um utandagskrárumræðurnar. Ég vil hins vegar láta það koma skýrt fram að hann hefur greinilega misskilið mig hafi hann litið svo á að ég hafi verið hér að tilkynna hvenær umræður um eitthvert ákveðið þingskjal færu fram. Það var ég ekki að gera. Ég sagði frá því að ég hefði sannspurt að skýrslan yrði lögð fram á þinginu á morgun eða hinn daginn. Það er að sjálfsögðu verk ráðherrans sem ég er þar að tala um. Mér er öldungis ókunnugt um hver áform eru um umræður um þá skýrslu.
Ég vil hins vegar mótmæla því að ég hafi á nokkurn hátt misnotað minn ræðutíma. Ég játa það að ég fór svolítið fram yfir en það var af mjög gildum ástæðum.