Lögverndun starfsréttinda

26. fundur
Fimmtudaginn 14. nóvember 1991, kl. 10:37:00 (945)

     Fyrirspyrjandi (Ólafur Þ. Þórðarson) :
     Herra forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. fyrir svar hans og jafnframt fagna ég því að vinna fer af stað til að skoða þetta. Ég tel að æskilegt sé að það verði gert hvort heldur sem Íslendingar gerast aðilar að þessum samningi um Evrópskt efnahagssvæði eða ekki því að mér virðist, því miður, að við höfum gengið of langt í þessu efni og séum e.t.v. farnir að skapa forréttindahópa með þeim vinnubrögðum sem við höfum viðhaft.