Listskreyting Hallgrímskirkju

26. fundur
Fimmtudaginn 14. nóvember 1991, kl. 11:35:00 (965)

     Sjávarútvegsráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
     Frú forseti. Vegna fyrirspurnar um það hvert yrði framhald málsins er þess að geta að formaður sóknarnefndar Hallgrímskirkju hefur óskað eftir viðræðum við ráðuneytið um þessi mál og önnur er að kirkjunni lúta. Að loknu því samráði verður tekin ákvörðun um hvernig á málinu verður haldið í framhaldinu.