Svavar Gestsson
:
Virðulegi forseti. Það er kannski ekki ástæða til að vera að tala almennt um þessi mál undir þessum dagskrárlið. Ég vil þó segja það í tilefni af orðum hæstv. heilbrrh. að ég tel að það viðhorf sem hann lýsti í lok sinnar ræðu áðan í grundvallaratriðum rangt. Fyrst og fremst vegna þess að með því er verið að byggja múra milli starfsmenntunar annars vegar og skólaþjálfunar hins vegar. Það er slæmt. Vandi skólakerfisins á Íslandi felst ekki síst í því að það hefur verið lokað af. Ýmist hefur skólakerfið gert það sjálft eða að atvinnulífið hefur lokað á skólakerfið. Það þarf að brjóta þá múra niður. Það viðhorf sem fram kom hjá hæstv. heilbr.- og trmrh. þegar hann bar blak af frv. til laga um starfsmenntun í atvinnulífinu stuðlar að því að þessi gjá verði áfram til. Það er slæmt.
Ég tel að heilbrrn. hafi stigið mjög mikilvægt skref með því frv. sem hér er á dagskrá vegna þess að þar er ekki eingöngu um það að ræða að menn séu að fjalla um þrönga fagmenntun. Menn eru að tala um t.d. lyfjatæknanám sem getur auðvitað tengst öðru námi líka. Það er þess vegna augljóst mál að hér er verið að gera menntun heilbrigðisstétta að almennum þætti í menntakerfinu í landinu og það er fagnaðarefni. Ég skora á hæstv. heilbrrh. að láta svo lítið þegar hann kemur hingað í stólinn, annaðhvort næst eða þar næst, að láta vita af því að hann hafi skilið þetta grundvallaratriði í menntamálum í landinu.