Mannaskipti í stjórn Vestnorræna sjóðsins

29. fundur
Þriðjudaginn 19. nóvember 1991, kl. 13:40:00 (1019)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) :
     Virðulegi forseti. Svarið við þessum tveimur spurningum er nei. Að sjálfsögðu er ekki gerð nein slík krafa til embættismanna í stjórnkerfinu og þeir eiga ekki von á neinum brottrekstri. Hér var ekki um neinn brottrekstur að ræða. Hér er eingöngu verið að skipta um menn í stjórnum og ráðum. Það er ekkert við því að segja. Það er á valdi forsrn. Ég taldi eðlilegt að skipta um í þessum tveimur störfum.